Súra umræðan í póstinum hér á undan.... Hvernig er hægt að
tengja það saman þegar ég segi tussufín ferð að ég hafi bara
verið á 1hverjum veiðum þarna í Molde??? Ekki alveg að
fatta....
Ég var að mála allan tíman þarna hjá honum Malla.... Spyrjið hann
bara!
En já nóg um það í bili. Ég er ennþá að velta því fyrir mér hvort
ég eigi að koma með ferðasögu, en ég held að ég nenni því varla.
Ætla bara að segja ykkur svona frá hápunktum ferðarinnar..
Fimmtudagur:
-Hitti Árna á flugvellinum og það voru fagnaðarfundir, faðmlög og
kossar hægri vinstri alveg...
-Árni fékk sér bjór, eða svokallað mýkingarefni eins og við viljum
kalla bjórinn núna, á flugvellinum í Osló. Bjórinn fékk þetta
viðurnefni vegna þess að Árni var með svo svakalegar harðsperrur í
höndunum að hann gat varla rétt úr þeim.
-Sáum þvílíkt heita stúlku í flugvélinni. Komumst svo að því á
flugvellinum í Molde að hún var í hernum.... damn -HOT ASS!
-Árni fékk sér bjór í flugvélinni.
-Malli og Adda sóttu okkur á flugvöllinn, fóru með okkur í íbúðina
sem þau búa í og þaðan var haldið í höllina sem þau keyptu sér um
daginn. BEINT AÐ VINNA! hehe!
-Tekið var í pensilinn 47 mínútum eftir lendingu og hann mundaður
fram eftir degi.
-Árni fékk sér nokkra til að “mýkja sig upp” svo að hann gæti
málað.... Riiiiiiight! haha!
-Árni fékk sér fleiri...
-Árni fékk sér tvo í viðbót ofan á þessa fleiri bara svo að hann
yrði alveg pottþétt vinnufær...
haha!
-Þessi dagur einkenndist af því að Árni var síkvartandi og vælandi
yfir hvað við værum vonlausir og svo hætti hann ekki að tala um
hvað hann væri æðislegur...
hehe!
-Árni kláraði 5 lítra af bjór þennan daginn... Ég lýg því ekki!!
hehe!
Föstudagur:
-Vöknuðum fyrir allar aldir þar sem að Malli þurfti að fara á
æfingu.
-Ég og Árni fórum með Öddu í “mollið” og þar pöntuðum við okkur
klippingu. Fórum sáttir þaðan út, ég stuttklipptur og nettur á
meðan Árni gekk út með topp, hártopp.
-Árni fékk sér mýkingarefni
-Árni reif kjaft....
-Tókum í pensilinn
-Árni fékk sér meira mýkingarefni
-Árni hélt áfram að rífa kjaft!
Laugardagur:
-Tókum í pensilinn og helvítis panillinn var orðinn vel lamaður á
þessum tímapunkti. Húsið hans Malla var eins og sumarbústaður að
innan og það þurfti að mála allan panil svo að það væri búandi
þarna inni.... Leit út fyrir að vera vonlaust verkefni fyrirfram,
en þegar þú ert með svona massa teimi eins og okkur fjögur, og
Íslendinga í þokkabót, þá er ekki að spyrja að leikslokum....
-Árni fékk sér bjór!
-Árni fattaði að hann var ekkert búinn að rífa kjaft þennan daginn
þannig að hann tók svona ca. hálftíma rispu og hraunaði bókstaflega
yfir allt og alla...
-Árni fékk sér mýkingarefni
-Panilnum var útrýmt um kvöldið, átti ekki séns í okkur!
-Adda eldaði meistara pasta í kvöldmat.... Hrikalega gott!
-Ég og Árni fórum á pöbbarölt, stoppuðum fyrst á sportbarnum í
miðbænum þar sem Árni fékk sér öl og ég kók. Horfðum á leik Reggina
og Ancona (eða 1hvað) og ákváðum síðan að flýja barinn þegar 17 ára
gömul börn voru farinn að kaup bjór á barnum. Viljum ekki taka þátt
í svoleiðis glæpastarfssemi...!
-Færðum okkur um set og kíktum á bar sem heitir því skemmtilega
nafni Blå/Röd. Sátum þar í góðan tíma og Árni fékk sér þrjá
stóra.
-Ég var búinn að lofa Árna að ég myndi nú þrauka með honum til
00.01 og halda þá heim á leið, en það varð óvænt breyting á plönum
þetta kvöldið. Klukkan 23.47 fór Árni niður á hnén og grátbað mig
um að vera lengur þar sem að hann hefur ekki fengið að fara út úr
húsi eftir klukkan 21.13 í 8 mánuði... hehe! Ég hef aldrei orðið
vitni af öðrum eins sannfæringarkrafti hjá einum manni og akkúrat
þarna, Gunnar í krossinum hefði ekki átt séns... þvílík innlifun í
orðunum hans urðu til þess að ég gat ekki annað en haldið áfram úti
á lífinu með stráknum... Það lá nánast við að ég sæi tár, hann
vildi þetta svo innilega...
hahhaha!
-Fórum á skemmtistaðinn STING og það er klárt mál að þetta er
heitasti staðurinn í Molde, allavega fyrir fólk á aldrinum 20-34
ára. Lentum samt í mjög furðulegu atviki þegar við ætluðum inn, það
var smá röð fyrir utan og ekkert að því svo sem en að hafa röð
þegar staðurinn er langt frá því að vera fullur er bara
brandari.... Það var alveg eins og þeir væru að reyna hafa röð svo
að það virtist fullt! Steikt pakk þarna fyrir
norðan
hehe! En staðurinn varð samt sem áður fljótt fullur eftir að
við mættum á svæðið, enda ekkert skrítið.... Hafiði séð okkur???
Þarf ekki að segja meira...
hahaha! Heiiiiiiiitir gæjar!
-Það var fullt af sætum stúlkum á svæðinu og við stákarnir vorum að
vekja lukku þarna...
hehe! Nýtt kjöt í bænum og allt verður
vitlaust!! hahah!
-Töluðum við mann og annan þarna inni og það er alveg merkilegt
hvað fólki finnst
gaman að tala við Íslendinga...
Ein stelpan var ekki að kaupa það
að ég væri íslenskur, hélt að ég væri nossari að tala ensku bara í
1hverju gríni... haha! Hún var “skeptisk” eins og hún orðaði
það....
-Löbbuðum heim og tókum pissustopp á 1hverja verksmiðu á leiðinni,
þá kom bíll á fleygi ferð og við sögðum báðir í kór... “Fokk, er
þetta löggan?” Héldum að við værum að fara fá sekt en svo var ekki
sem betur fer.... Bara 1hver securitas gaur að tékka á hurð þarna í
nánd við okkur.
-Já gleymdi að segja ykkur það að Árni var hauslaus... hehe!
-Þegar við komumst loksins upp í bedda þá byrjaði Árni með bögg!
hahaha! Hann var 1hvað að tauta og var svo að reyna bora puttanum á
sér upp í rassgatið á mér... þegar það var ekki að virka þá ætlaði
hann sér bara að grípa um vininn minn en þá sagði ég hingað og ekki
lengra Árni minn og sagði bara pent: “Láttu mig í friði helvítis
rjóminn þinn!!!” hahhaha! Höfum það samt á hreinu að ég hef ekkert
á móti þeim sem spila með hinu liðinu, það er bara þannig að þegar
vinir þínir eru að káfa á manni þá má maður blóta svona...
hehe!
Sunnudagur:
-Leikdagur hjá Malla
-Tókum samt í pensilinn fyrir leik
-Árni fékk sér mýkingarefni til að “rétta sig af”.... svo virðist
sem að það séu til endalausar afsakanir til þess að fá sér
öl...
-Fórum á leikinn og sáum Malla spila fínan leik að einu atviki
undanskyldu... Kappinn nældi sér í rautt spjald fyrir tæklingu sem
verður að teljast svoldið hörð.... Sorry Malli minn, þetta leit
bara ekki vel út og sérstaklega ekki þegar ég sá þetta í
sjónvarpinu...
hehe! En ég er samt á því að hann hefði getað
sloppið með gult en gaurinn sem hann tæklaði öskraði bara svo hátt
að dómarinn gat ekki annað en lyft rauða spjaldinu í þetta skiptið.
Gaurinn var borinn útaf en var ekki lengi að koma sér á fætur
aftur.... þoli ekki svoleiðis leikmenn!!
-Fórum á EGON, sem er veitingastaður, og fengum okkur að snæða með
leikmönnum eftir leik. Kom svo á daginn að Molde Fotball Klub var
að bjóða þannig að ég og Árni gengum út með
sólheimaglott...
-Fórum í póker og ég og Malli skiptum þessu bróðurlega á milli
okkar, unnum sinnhvorn leikinn á meðan Árni og Adda skíttöpuðu í
bæði skiptin.
Mánudagur:
-Vaknað seint
-Unnum upp í húsi og kláruðum nánast efrihæðina eins og hún lagði
sig.
-Malli og Árni rifu út heila eldhúsinnréttingu eins og hún lagði
sig, eða eins og Árni orðaði það svo skemmtilega... “Við
núllstilltum eldhúsið” hehe!
-Enduðum svo daginn á veitingastaðnum Mílanó og fengum okkur
ljómandi fínar pizzur.
Þriðjudagur:
-Vaknað eldsnemma og farið í sturtu.
-Malli var viss um að við þyrftum ekkert að drífa okkur út á
flugvöll... Hann hafði RANGT fyrir sér! Gaurinn á flugvellinum
sagði við mig: “Venjulega hleypum við farþegum ekki með ef þeir
koma hálftíma fyrir brottför” Eeeeeen, hann sleppti okkur í þetta
skiptið... Malli var pottþétt að reyna halda okkur lengur enda er
nóg að gera í höllinni hans..
Kemur Malli! hehe!
-Í flugvélinni á leiðinni heim þá fór nú aðeins um mann...
Flugvélin tók nokkrar snarpar dýfur, sem er svo sem allt í lagi, en
manni stóð nú ekki beint á sama þegar hún var farinn að hristast og
kastast til hliðar þannig að ljósin í flugvélinni sloknuðu nánast
alveg.... Ég ætla að vitna í Árna orðrétt núna: “Æj Æj! Æj Æj!”
Gaurinn við hliðina á mér var örugglega 73 ára og hann rýghélt
alveg í sætið fyrirfram sig úr hræðslu....
-Lentum heilu og höldnu og Árni hélt sína leið og ég
mína...
Vá þetta var nú eiginlega bara ferðasaga eftir allt
saman...
Takk Malli og Adda fyrir þessa fínu daga þarna í Molde.... Ég mun
mæta aftur bráðlega í heimsókn!
Ég geri ráð fyrir að þið séuð
ennþá án internets þannig að þið munuð aldrei sjá þessa
ferðasögu... hehe!
Takk Árni Sveinsson fyrir að vera þú.... Frábært að geta eytt
tímanum með svona eðalvitleysingum eins og þér og Malla...
hehehe!